Úrdráttur í genalottóinu

Þessi vann ekki í genalottóinuÞað verður að viðurkennast að ég er kosningalúði. Ég er nörd.

Kosningar vekja miklar tilfinningar hjá mér. Gleði, hamingju, ást, spennu, æsing, stress, vonbrigði og sorg, allt í senn ... og ég er líklega eina manneskjan í aðdáendahópi kosningapósts. Ég elska kosningapóst! Eins og æsispenntur smákrakki að morgni aðfangadags, strunsa ég að póstkassanum þegar ég kem heim á kvöldin, skima eftir gúmmelaðinu og ríf það upp úr umslaginu á nýju ungmennafélagsmeti ... og dýrðin er engri annarri lík. Silkimjúkir, höfðinglega saman brotnir, fagurlega skreyttir og flestir yfirfullir af loforðum sem aldrei verður staðið við, veita þessir bæklingar mér andlega fullnægingu. Lífsfyllingu.

Ég hef hins vegar orðið fyrir nokkrum vonbrigðum með bæklingana í ár og raunar kosningabaráttuna yfir höfuð. Það fer nefnilega ótrúlega lítið fyrir málefnum. Fallegu loforðin hafa vikið fyrir ... tja, hvað skal segja ... misfallegu fólki. Það er svosem ágætt að minna sé um hin ýmsustu loforð sem stjórnmálamenn gefa á kostnað okkar skattgreiðenda, en ljóst er hins vegar að það hentar ekki öllum stjórnmálaflokkum að tefla fram fólkinu. Loforðin fara þeim einfaldlega betur en fólkið sem að baki loforðunum stendur. Svo ég tali nú bara tæpitungulaust, má segja að það hafi ekki allir verið jafn heppnir í genalottóinu hvað útlitið varðar. Það læðist raunar að mér sá grunur að sumir hafi einfaldlega ekki spilað með.

En ástæða þess að vonbrigði mín hafa orðið mikil er einföld. Ef auglýsingar með pínlegu brosi lélegra ljósmyndafyrirsæta eiga að vera þungamiðja kosningabaráttunnar, þá verður niðurstaða kosninganna mjög fyrirsjáanleg ... og baráttan þar af leiðandi mjög leiðinleg. Það þarf varla sérfræðiálit frá Heiðari snyrti til að segja með nokkurri vissu að Sjálfstæðisflokkurinn færi með stórsigur.


Klöppum fyrir...

Klöppum fyrir manninum sem hafði lengi dreymt um gera eitthvað stórt, eitthvað mergjað, eitthvað ógleymanlegt, lét drauminn rætast og gerði auglýsingar fyrir Framsókn í komandi kosningum!

Klöppum fyrir þessum sama manni sem hafði lengi dreymt um að gera eitthvað flippað, eitthvað metró, eitthvað kreisí, lét drauminn rætast og lét Jón Sigurðsson vera í öllum auglýsingum Framsóknar í komandi kosningum!

Klöppum fyrir manninum sem lét langþráðan draum rætast og murkaði endanlega lífið úr níræðum stjórnmálaflokki, algerlega grímulaust, með því að gera hann jafn spennandi og sjálfdauða rollu í komandi kosningum!


Þessi maður á skilið Thule!

Viðbót: Nei, nei - hann er ekki hættur maðurinn ... bara hreinlega migið yfir líkið! Já, fandinn hafi það - klöppum bara fyrir því líka


Hrærð og þakklát

Það væri auðvitað draumi líkast ef ég gæti slegið um mig á þessari stundu og notað vel þekkta frasa stjórnmálamanna til að tjá hversu mikilfenglegt það er að ég skuli vera byrjuð að blogga á ný eftir fremur langt hlé. Það væri unaðslegt ef ég gæti sagt að margir hefðu komið að máli við mig, að ég fyndi fyrir miklum meðbyr og að ég væri afar þakklát fyrir allan þann stuðning og þá hvatningu sem ég hefði fengið frá fólki undangengna daga. Þá væri líka gaman ef ég gæti tjáð umheiminum tæpitungulaust að það væri eftirspurn eftir sjónarmiðum mínum.

Tilhugsunin ein veitir mér lífsfyllingu.

Raunveruleikinn er hins vegar annar. Það hefur enginn komið að máli við mig og beðið mig að byrja að blogga á ný, það er enginn meðbyr og ég er ekki við það að missa þvag í eigin geðshræringu yfir stuðningi fólks. Hvort eftirspurn er eftir sjónarmiðum mínum verður einfaldlega að koma í ljós. Eins og hver annars sjálfskipaður besserwisser hef ég þó hafið blaður að nýju. Sjáum hvað setur.


« Fyrri síða

Innskráning

Ath. Vinsamlegast kveikið á Javascript til að hefja innskráningu.

Hafðu samband